Q:
Hvernig sæki ég um aðgang að þjónustugátt?
A:
Ef þú hefur ekki nú þegar stofnað þína síðu skráir þú kennitöluna þína undir NÝSKRÁNING. Fylgdu leiðbeiningunum og þú færð sent notendanafn og lykilorð í heimabankann þinn nær samstundis. Þú finnur upplýsingarnar undir Rafræn skjöl eða Netskjöl. Síðan geturðu skráð þig inn í þjónustugáttina undir INNSKRÁNING.
Smelltu í svæðin og fylltu inn rétt notendanafn og lykilorð. Smelltu síðan á hnappinn INNSKRÁNING.

Q:
Síðan mín
A:
Þegar þú skráir þig inn opnast SÍÐAN MÍN. Á henni má sjá eftirfarandi:
Fliparnir Síðan mín, Umsóknir, Málin mín, Skilaboð, Erindi, Stillingar (sjá nánari skýringu á hverju fyrir sig hér fyrir neðan.
Einnig má sjá stutt yfirlit stöðu mála, skilaboða, fjármála, veðurfréttir, hjálp, tenglar, hobby hornið og tilkynningar ásamt atburðadagatali er sýnir helstu atburði svæðisins. Einnig má sjá Mentor hnapp (nánar skýring hér fyrir neðan).

Q:
Hvað eru umsóknir
A:
Undir flipanum UMSÓKNIR má finna yfirlit yfir umsóknir kerfisins. Sumar eru rafrænar (grænn punktur) og aðrar eru á pdf formi (rauður punktur).
Smelltu á umsókn til að sækja um og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.

Q:
Hvað eru skilaboð?
A:
Flipinn SKILABOÐ hefur að geyma öll skilaboð sem kerfir sendir. Öll samskipti vegna rafrænna umsókna og erinda eru staðfest í netpósti, sem sendist á þína síðu. Þú getur einnig valið um að fá slík skilaboð send beint á netfangið þitt. Þú getur eytt skilaboðum með því að smella á hnappinn í enda línunnar.
Til að breyta netfangi þá smellirðu á BREYTA PERSÓNUUPPLÝSINGUM á SÍÐAN MÍN eða smellir á flipann STILLINGAR.

Q:
Hvað eru málin mín?
A:
Undir flipanum málin mín, má sjá yfirlit yfir öll mál sem hefur verið stofnað til í þjónustugáttinni. Hér má sjá stöðu málanna. Hægt er að smella á mál og má þá sjá yfirlit yfir málið. Í vissum tilfellum er einnig hægt að framkvæma ýmsar aðgerðir. T.d. hafna eða samþykkja skólaferðalag. Þegar staða málanna breytist þá færðu send skilaboð inn í þjónustugáttina og á uppgefið netfang.

Q:
Hvað eru erindi?
A:
Undir flipanum erindi, getur notandinn sent inn erindi um hina ýmsu málaflokka sveitarfélagsins. Hægt er að senda inn Hrós, kvörtun, ábendingu, fyrirspurn og almenna umsókn. Þegar starfsmaður sveitarfélagsins hefur svarað erindinu þá berast skilaboð í þjónustugáttina og á uppgefið netfang notanda.

Q:
Getur barn sótt um aðgang að þjónustugátt sveitarfélagsins?
A:
Þeir, sem verða 18 ára á yfirstandandi ári og eldri, geta fengið aðgang að þjónustugáttinni. Foreldar verða því að sækja um fyrir börn sín þangað til þau ná 18 ára aldri.
Þjóðskrá Hagstofu Íslands er grundvöllur að tengingu barna við foreldri í kerfinu.

Q:
Hvað er Mentor?
A:
Mentor er vefkerfi sem gerir þér kleift að nálgast upplýsingar frá grunnskóla eða leikskóla barna þinna. Þessar upplýsingar eru skráðar í upplýsingakerfi sem er notað í flestum grunn- og leikskólum landsins. Á vefnum birtast upplýsingar varðandi þín börn, óháð því hvaða skóla þau sækja.
Þegar þú hefur skráð þig inn í þjónustugáttina þá opnast fyrst SÍÐAN MÍN. Þar inni, í miðjunni til hægri, er hnappurinn MENTOR.
Þú þarft ekki að hafa sér notandanafn og lykilorð fyrir Mentor því að innskráning í þjónustugátt sveitarfélagsins jafngildir innskráningu í Mentor. Það þýðir að hægt er að smella á hnappinn MENTOR og skráist þú þá sjálfkrafa inn í Mentor kerfið og getur þar nálgast upplýsingar um börn þín.
Allar upplýsingar sem eru inni í Mentor eru á ábyrgð viðkomandi skóla og Mentor. Ef einhverjar upplýsingar vantar þar inni, vinsamlega hafið þá samand við viðkomandi skóla.
