Þjónustugátt Seltjarnarness er varin með SSL eða Verisign. Það þýðir að öll samskipti á vefnum eru dulkóðuð. Þetta getur notandinn séð á því að þegar hann skráir sig inn í þjónustugáttina þá breytist vefslóðin úr http í https. Á öruggu vefsvæði birtist einnig lokaður hengilás neðst til hægri í vefskoðaranum. Með þessu móti má því alltaf sannreyna hvort tiltekin vefsíða sé örugg (e. secure).
Þegar notandi sækir um aðgang að þjónustugáttinni þá fær hann sent í netpósti notandanafn og lykilorð. Þessar upplýsingar eru einnig sendar í venjulegum pósti til viðkomandi aðila. Lykilorð eru krypteruð í grunni kerfisins og enginn hefur því aðgang að þeim. Ef notandi týnir lykilorðinu sínu, þá býr kerfið til nýtt lykilorð, þegar smellt er á TÝNT LYKILORÐ á forsíðu Rafræns Seltjarnarness.
Lykilorðið kemur í veg fyrir að óviðkomandi aðilar komist inn á svæði notanda og ber notandi ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru undir hans lykilorði. Leiki einhver grunur á að aðrir viti lykilorðið er nauðsynlegt að breyta því við fyrsta tækifæri. Það má gera í þjónustugáttinni undir: Síðan mín -> Breyta lykilorði.
Það er skynsamlegt að breyta lykilorði reglulega af öryggisástæðum. Lykilorð verður vera minnst átta stafa langt. Það má vera samsett úr tölustöfum og bókstöfum. Ekki má nota séríslenska stafi eða tákn.
Einungis íbúinn hefur yfirsýn yfir öll sín mál. Hver stofnun, eins og skóli, frístundaheimili, tónlistarskóli, sveitarfélag sjá síðan bara það sem þeim er ætlað, umsóknina sem þeim er send.
Vistun gagna
Öll kerfi og persónugreinanleg gögn sem notendur íbúatorgs geta skoðað á torginu eru hýst á vélbúnaði hjá ANZA sem er sérhæft í hýsingu og rekstri tölvukerfa. ANZA starfar samkvæmt ströngum öryggisreglum og stöðlum og er alls öryggis gagna og kerfa vandlega gætt með það að markmiði að engin óviðkomandi aðli geti komist í kerfin eða þau gögn sem tilheyra kerfinu og notendum þess. Öll gagnasamskipti við önnur kerfi fara fram eftir öruggum og leiðum og gögn eru dulkóðuð í sendingum.